Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Tillaga til þingsályktunar um drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar

Mál númer: 
6
Ár: 
2008
Flutt af: 
Biskup Íslands
Framsögumaður: 
Karl Sigurbjörnsson
Texti máls: 

Kirkjuþing 2008 samþykkir að beina því til biskups Íslands að drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar verði áfram til kynningar og umræðu á vettvangi kirkjunnar og hljóti lokaafgreiðslu á Kirkjuþingi 2009.

Greinargerð:
Biskup Íslands hefur unnið tillögur að samþykktum um innri málefni kirkjunnar, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Samkvæmt 3. mgr. sama ákvæðis skulu samþykktir um kenningarleg málefni, guðsþjónustuhald, helgisiði, skírn, fermingu og altarissakramenti sæta umfjöllun prestastefnu áður en þær hljóta endanlega afgreiðslu á Kirkjuþingi. Prestastefna 2008 fékk tillögurnar til umfjöllunar og var samþykkt að óska eftir því að fjallað yrði um málið að nýju á Prestastefnu 2009. Rétt þykir að leggja tillögurnar fyrir Kirkjuþing 2008 til að fá umræðu og skoðanaskipti. Stefnt verði að því að ljúka afgreiðslu málsins á Kirkjuþingi 2009. Eðlilegt þykir að Kirkjuþing ákvarði næstu skref málsins, þ.e. hvort setja eigi ítarlega kynningu af stað á vettvangi kirkjunnar.
Með máli þessu fylgja drög að tillögum um innri málefni kirkjunnar.

Fylgiskjöl: 
6. mál 2008 Samþykktir um innri málefni drög - 21. sept. 2008
SkjölStærð
6 mál 2008 Word skjal Tillaga til þingsályktunar um drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar.doc26 KB
6. mál 2008 Fskj. B Samþykktir um innri málefni drög 21. sep. 2008.doc210.5 KB