Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um þingsköp kirkjuþing nr. 235 / 2006

Mál númer: 
17
Ár: 
2008
Flutt af: 
Jón Helgi Þórarinsson, Magnús Björn Björnsson og Þorgrímur Daníelsson
Framsögumaður: 
Þorgrímur Daníelsson
Texti máls: 

1. gr.
1. mgr 4. gr. orðist svo: Þingmál skulu hafa borist forseta kirkjuþings sex vikum fyrir upphaf þings og sendast þingfulltrúum svo skjótt sem auðið er. Forsætisnefnd getur veitt undanþágu frá greindum tímamörkum ef sérstök rök mæla með því. Flutningsmenn þingmáls skulu vera þrír hið fæsta. Kirkjuþingsfulltrúar skulu leitast við að kynna mál sín á héraðsfundum.

2. gr.
Við 4 gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Á hverju kirkjuþingi skal vera sérstakur þingfundur þar sem kirkjuþingsmönnum gefst kostur á að hefja umræðu um mál sem ekki eru á dagskrá þingsins. Skal slíkur þingfundur að jafnaði haldinn að loknum fyrirspurnatíma. Yfirskrift og meginefni slíkra mála skal afhent forseta með sólarhrings fyrirvara.

3. gr.
Við 9. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Þingfundir skulu að jafnaði eigi hefjast fyrr en kl. 09.00 og ljúka að jafnaði eigi síðar en kl. 17.00. Nefndarfundum skal að jafnaði ljúka eigi síðar en kl. 19.00 dag hvern.

4. gr.
Á eftir 1. ml. 23. gr. kemur nýr ml. svohljóðandi: Skýrslu Kirkjuráðs skal skipt í kafla í samræmi við skiptingu verkefna milli starfshópa Kirkjuráðs. Hver kafli skal ræddur sérstaklega.

5. gr.
1. mgr. 24 gr. orðist svo: Leikir kirkjuþingsmenn og aðrir sem seturétt eiga á Kirkjuþingi og ekki þiggja laun frá kirkjulegum aðilum meðan á Kirkjuþingi stendur fá þingfararkaup fyrir hvern dag sem þingið situr og fjóra daga fyrir hvert þing til undirbúnings. Afleysing vígðra kirkjuþingsmanna sem þiggja laun hjá Þjóðkirkjunni skal tryggð meðan á þingi stendur og fjórum dögum fyrir eða eftir þingtíma og þiggja þeir ekki þingfararkaup.

6. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 7. mgr. 21. gr. og 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi þegar í stað.

Athugasemdir við tillögur þessar:
1. Hér er lagt til að sömu reglur gildi um öll þingmál. Sérákvæði um skýrslu Kirkjuráðs og fjármál Þjóðkirkjunnar falli niður. Forsætisnefnd hefur þó eftir sem áður vald til að veita undanþágur frá þessum tímamörkum. Ákvæði um að kynna skuli þingmál á héraðsfundum falli niður, enda hefur reynsla undanfarinna ára sýnt að mjög takmarkaður áhugi og tími er á héraðsfundum til að ræða málefni Kirkjuþings. Kirkjuþingsmönnum verður því heimilt, en ekki skylt, að ræða fyrirhuguð þingmál á héraðsfundum. Sérstök leiðarþing, jafnt fyrir kirkjuþingsmenn og fulltrúa sókna, þar sem mál Kirkjuþings eru rædd hafa reynst miklu árangursríkari og betra veganesti fyrir kirkjuþingsmenn en umræða á héraðsfundum. Æskilegt væri að semja starfsreglur um slík þing heima í héraði. Mætti hugsa sér að slík leiðarþing væru haldin í byrjun árs sem og stuttu fyrir Kirkjuþing. Á leiðarþinginu í byrjun árs væri farið yfir nýafstaðið þing og rætt um mál sem þyrfti að undirbúa fyrir næsta þing. Stuttu fyrir Kirkjuþing að hausti væri síðan farið yfir þau mál sem rædd verða á næsta þingi. Vel kæmi til greina að greiða kirkjuþingsfulltrúum fyrir setu á leiðarþingum sem og útlagðan kostnað.
2. Hér er lagt til að þingmönnum gefist kostur á að vekja máls á mikilvægum málum, án þess að þurfa að bera fram sérstök þingmál. Fyrirspurnatími er mjög takmarkaður, enda takmarkaðar umræður leyfðar.
3. Hér er lagt til að hámark verði sett á fundartíma hvers dags. Einnig er þessi breyting hugsuð til að setja skorður við óhóflega löngum nefndarfundum mörg kvöld. Slíkt hefur því miður verið of algengt. Þingmenn hafa þá hvorki tíma til að undirbúa sig fyrir næsta dag né sinna persónulegum málum. Skoða þarf einnig hvort breyta megi vinnulagi nefnda, jafnvel vinna meiri undirbúningsvinnu áður en sjálft þinghaldið hefst, s.s. hvað varðar vinnu allsherjarnefndar um skýrslur o.fl. Telji forseti brýna nauðsyn bera til að lengja þingfund getur hann það.
4. Hér er lagt til að skýrslu Kirkjuráðs verði skipt í kafla og hver kafli ræddur sérstaklega. Þetta er lagt til, til þess að gera umræðu markvissari, en í skýrslu Kirkjuráðs er komið inn á afar mörg mál sem snerta stefnumörkun í starfi Þjóðkirkjunnar og framkvæmd.
5. Hér er lagt til að þingfararkaup vígðra manna falli niður, þiggi þeir einnig laun frá kirkjulegum aðila (Þjóðkirkjunni eða sóknarnefnd eða öðrum sambærilegum aðila) á meðan á Kirkjuþingi stendur. Á móti kemur að lagt er til að vígðir kirkjuþingsmenn fái afleysingu allt að fjórum dögum lengur en Kirkjuþing situr, og eru þeir ætlaðir til undirbúningsvinnu fyrir Kirkjuþing. Með sama hætti fái leikmenn á Kirkjuþingi þingfararkaup í fjóra daga fyrir Kirkjuþing til undirbúnings. Það er skoðun flutningsmanna að þingfararkaupið sé of lágt. Slíkt hlýtur fyrst og fremst að koma niður á leikmönnum sem þurfa að taka sér launalaust frí frá vinnu til að sitja kirkjuþing. Prestar og aðrir vígðir þjónar kirkjunnar hafa ekki þurft að gera slíkt, en hafa á hinn bóginn verið að sinna þjónustu sinni samhliða þinghaldi. Slíkt gengur ekki. Því ber að tryggja afleysingaþjónustu fyrir vígða þjóna á meðan á þinghaldi stendur. Vígðir kirkjuþingsmenn eiga með þessum tillögum að njóta launa sinna á meðan á þinghaldi stendur og eiga þau laun að mæta störfum á Kirkjuþingi. Þingfararkaup er því óþarft, sé afleysing til staðar. Það fé sem kann að sparast með þessum hætti ætti að ganga upp í að hækka þingfararkaup óvgíðra svo það verði viðunandi. Til viðmiðunar mætti hafa að þingfundir eru að lágmarki 5-6 dagar, svo kemur ferðadagur og síðan 3-4 dagar í undirbúning. 10 dagar er tæplega ½ mánaðarlaun (tæpl 22 vinnudagar í mánuði) og viðmiðið mætti vera grunnlaun sóknarprests – um 450 þús kr – og því ekki óeðlilegt að ætla þingarfararkaup um 200 þús. kr.

SkjölStærð
17. mál 2008 Word skjal Tillaga að starfsreglum um breyting á á starfsreglum um kirkjuþing nr 235 2006.doc31.5 KB