Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
|
1. gr. Sóknir, prestaköll, prófastsdæmi og umdæmi vígslubiskupa eru tilgreind í 12. gr. starfsreglna þessara. 2. gr. Þess skal gætt að sókn geti uppfyllt skilyrði um rekstur og fjárhag sókna, sbr. starfsreglur um sóknarnefndir. 3. gr. Hver sóknarmaður getur gert tillögu um breytingu á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma. Tillögur um breytingar á skipan sókna og prestakalla skulu fá umsögn á aðalsafnaðarfundum viðkomandi sókna og því næst bornar upp á héraðsfundi, sem sendir þær biskupafundi. Hann býr málið til kirkjuþings. Tillögur um breytingar á skipan prófastsdæma skulu fá umsögn á viðkomandi héraðsfundum og því næst sendar biskupafundi, sem býr málið til kirkjuþings. 4. gr. Biskupafundur kannar árlega hvort þörf er á breytingum á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma, með hliðsjón af hagkvæmni, breytingum á mannfjölda í sóknum, samgöngum, staðháttum eða aðstæðum að öðru leyti. Við mat á skipan sókna skal líta til þjónustuþarfa, sögulegra og menningarlegra verðmæta. 5. gr. Ef prestakalli er skipt hefur skipaður sóknarprestur rétt á að ráða hvoru prestakallinu hann þjónar eftirleiðis. 6. gr. Sameining sókna eða skipting sóknar skal að jafnaði taka gildi 1. desember eftir að kirkjuþing það ár hefur hefur samþykkt sameiningu eða skiptingu. 7. gr. Sé sókn skipt skal uppgjör vegna eigna og skulda fara eftir hlutfallstölu sóknarmanna Sóknarkirkja ásamt búnaði tilheyrir þeirri sókn þar sem kirkjan stendur. Þegar kirkjusókn er skipt og ný stofnuð, í nýju byggðahverfi, á hin nýja sókn óskert tilkall til þeirra fjármuna, sem sóknarmenn hinnar nýju sóknar hafa sannanlega lagt til eldri sóknarinnar, þó að frádreginni sanngjarnri þóknun fyrir þá þjónustu, sem sóknarmenn nýju sóknarinnar nutu, meðan sóknin var óskipt. Heimilt er að hafa fjárskil eftir annarri reglu ef um það næst samkomulag milli sóknanna. Framkvæmd fjárskipta er í höndum þriggja manna skilanefndar er biskup skipar hverju sinni. 8. gr. Ef sóknir óska eftir að eiga samstarf sín á milli um byggingu og/eða rekstur kirkju og safnaðarheimilis skal gera skriflegan samstarfssamning, þar sem kveðið er á um hvaða starfi skuli haldið uppi, hvaða reglur gildi um afnot og umgengni, sbr. starfsreglur um afnot af safnaðarheimilum og hver ábyrgist daglegan rekstur og stjórn. Einnig skal tiltaka hvaða endurgjald skuli innt af hendi fyrir afnotin. 9. gr. Með tillögu um breytingu skv. 4. gr., skal leggja fram tillögu að staðsetningu prestsseturs ef þörf krefur, að höfðu samráði við sóknarprest og sóknarnefndir, biskupafund og Kirkjuráð. Enn fremur skulu fylgja tillögur um hvaða kirkja skuli verða sóknarkirkja. Ef heppilegt þykir að sóknir sameinist um kirkju og/eða safnaðarheimili skal biskupafundur gera tillögur um þau efni. Biskupafundur skal enn fremur leggja fram tillögur um það hvaða kirkjur skuli verða kapellur eða greftrunarkirkjur. Þar sem hefð stendur til er heimilt að þær haldi nafni sínu. 10. gr. Sóknarkirkja skal vera í hverri sókn. Þó er sóknum heimilt að sameinast um sóknarkirkju. 11. gr. Ef sóknir sameinast skal aðalsafnaðarfundur hinnar sameinuðu sóknar ákveða hvar sóknarkirkja skal vera og hvaða kirkjur verða kapellur, svo og hvaða kirkjur skuli afleggjast, verða afhentar til minjavörslu, ef því er að skipta, eða ráðstöfun þeirra með öðrum hætti. [12. gr. Skipan vígslubiskupsdæma, prófastsdæma, prestakalla, sókna og prestssetra skal vera sem hér segir:] 1)
1) 1. gr. starfsreglna nr. 947/2009
13. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru skv. heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. desember 2007. Jafnframt falla brott starfsreglur um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 731/1998, með síðari breytingum.
----------------------------------------
2. gr. starfsreglna nr. 947/2009 um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 er svohljóðandi:
Rangárvallaprófastsdæmi
Bæirnir Ártún, Bakkakot 1 og 2, Ármót, Fróðholt og Uxahryggur 1 og 2 (Bakkabæir í Landeyjum) sem tilheyra Oddasókn tilheyri Akureyjarsókn. Breyting þessi taki gildi 30. nóvember 2009.
3. gr. starfsreglna nr. 947/2009 um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 er svohljóðandi:
Starfsreglur þessar sem settar eru skv. heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 30. nóvember 2009.
Sameiningar eftirfarandi prestakalla komi til framkvæmda við starfslok þess sóknarprests sem fyrr lætur af embætti:
Suðurprófastsdæmi:
Kálfafellsstaðarprestakall sameinist Bjarnanesprestakalli. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Bjarnanesprestakall. Prestssetur: Höfn.
Suðurprófastsdæmi:
Holtsprestakall sameinist Víkurprestakalli. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Víkurprestakall. Prestssetur: Vík. Akureyjar- og Krosssóknir tilheyri þó Breiðabólsstaðarprestakalli.
Suðurprófastsdæmi:
Mosfellsprestakall og Skálholtsprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Skálholtsprestakall. Prestssetur: Skálholt.
Suðurprófastsdæmi:
Stóra- Núpsprestakall og Hrunaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Hrunaprestakall. Prestssetur: Hruni.
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi:
Ólafsvíkurprestakall og Ingjaldshólsprestakall sameinist.
Heiti hins sameinaða prestakalls verði Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall. Prestssetur: Ólafsvík.
Vestfjarðaprófastsdæmi:
Staðarprestakall sameinist Þingeyrarprestakalli. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Þingeyrarprestakall. Prestssetur: Þingeyri. Súðavíkur- , Vatnsfjarðar- og Ögursóknir tilheyri þó Holtsprestakalli.
Eyjafjarðarprófastsdæmi:
Hríseyjarprestakall og Möðruvallaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Möðruvallaprestakall. Prestssetur: Möðruvellir.
Ákvæði starfsreglna nr. 947/2009 um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 til bráðabirgða er svohljóðandi:
Suðurprófastsdæmi:
Biskupi Íslands er heimilt að ráða héraðsprest í allt að 50% starf er hafi sérstakar skyldur við Bjarnanesprestakall.
Við sameiningu prófastsdæma samkvæmt starfsreglum þessum fellur skipun viðkomandi prófasta niður 30. nóvember 2009. Biskup Íslands setur prófast í sameinuðu prófastsdæmi til 1. febrúar 2010 og kallar eftir tilnefningum. Biskup Íslands skipar prófast í sameinuðu prófastsdæmi frá 1. febrúar 2010. Halda skal héraðsfund í sameinuðu prófastsdæmi eigi síðar en 1. mars 2010.
|
þingsályktun
Kirkjuþing samþykkir að fela kirkjuráði að kynna eftirfarandi tillögur að breytingu á ákvæðum 12. gr. í starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 og ákvæðum 1. gr. í starfsreglum um prófasta nr. 966/2006 á héraðsfundum viðkomandi prófastsdæma. Tillögurnar verði að lagðar fyrir kirkjuþing 2010 til afgreiðslu með umsögnum héraðsfundanna.
1. gr.
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
Staðastaðarprestakall sameinist Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli. Breytingin taki gildi við starfslok þess sóknarprests er fyrr lætur af embætti.
2. gr.
Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vesturlandsprófastsdæmi.
3. gr.
Eyjafjarðarpófastsdæmi og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
4. gr.
Múlaprófastsdæmi og Austfjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Múlaprófastsdæmi.
5. gr.
Breytingarnar taki gildi 30. nóvember 2010.
Starfsreglur um breytingu á
starfsreglum um prófasta nr. 966/2006
Flm.: Löggjafarnefnd
Frams.: Kristján Björnsson
1. gr.
Heiti prófastsdæma, sem nefnd eru í starfsreglum um prófasta 1. gr. breytast til samræmis við breytingu ákvæða 12. gr. í starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.
2. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru skv. heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 30. nóvember 2009.
Guðrún Finnbjarnardóttir, 10/12 2009 11.57