Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Viðaukasamningur
um tímabundna breytingu á fjárframlögum frá ríkinu samkvæmt samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997, sbr. 60. gr. laga nr. 78/1997.
1. gr.
Við hrun fjármálakerfisins í október 2008 komust fjármál ríkisins í uppnám. Tekjur ríkisins hafa síðan dregist verulega saman og útgjöld aukist og ríkissjóður er rekinn með meiri halla en nokkur dæmi eru um. Til þess að ná árangri í ríkisfjármálum er nauðsynlegt að grípa til margþættra aðgerða til lækkunar á útgjöldum ríkisins.
Í þessu skyni fellst þjóðkirkjan á að leggja sitt af mörkum og hreyfir ekki andmælum við að framlög ríkisins samkvæmt samningi frá 10. janúar 1997 verði lækkuð á árinu 2010 til samræmis við almennan niðurskurð á flestum sviðum ríkisins.
Að frátöldum launa- og verðlagshækkunum sem nema 37 millj. kr. er um hagræðingarkröfu að ræða til þjóðkirkjunnar um 160 millj. kr.
2. gr.
Þrátt fyrir að aðilar samkomulagsins líti á framangreint samkomulag um eignaafhendingu og skuldbindingu sem fullnaðaruppgjör þeirra, vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907, eru aðilar sammála um að ofangreind skerðing á framlagi ríkisins vegna launagreiðslna samkvæmt 3. gr. samkomulagsins, leiði ekki til riftunar kirkjujarðasamkomulagsins.
3. gr.
Samkomulag þetta leiðir einnig til þess að hagræðingarkrafa er gerð gagnvart Kristnisjóði á árinu 2010 um 9 milljónir umfram þá lækkun sem lágmarkslaun 15 prestsembætta hefur tekið.
4. gr.
Samkomulagi þessu sem gert er með fyrirvara um samþykki kirkjuþings og Alþingis er ætlað að gilda fyrir árið 2010.
Guðrún Finnbjarnardóttir, 17/12 2009 14.15