Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Breyttar kosningareglur til biskupskjörs

Á aukakirkjuþingi sem haldið var í dag í Grensáskirkju var starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa breytt í þá veru að taka aftur upp póstkosningar í stað rafrænna kosninga eins og var fyrirhugað. Það var gert að beiðni kjörstjórnar sem taldi að kosningin yrði öruggari með póstkosningu.

Jafnframt var kosin fimm manna nefnd sem er ætlað það hlutverk að endurskoða starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa og á hún að skila störfum á kirkjuþingi sem kemur saman næsta haust.

Í setningarræðu sinni á aukakirkjuþingi ræddi Pétur kr. Hafstein forseti kirkjuþings m.a. um þá skoðun sína að allt þjóðkirkjufólk – ekki aðeins trúnaðarmenn í sóknarnefndum ætti að njóta kosningarréttar til biskupskjörs sem og kirkjuþings, eða a.m.k. allir þeir sem koma að kirkjulegu starfi með einum hætti eða öðrum, enda væri þjóðkirkjan stærsta fjöldahreyfingin í landinu.

Þá sagði Pétur brýnasta verkefni kirkjunnar um þessar mundir væri að endurheimta traust og trúnað og ná til þeirra sem af einhverjum ástæðum hafa ekki talið sig eiga lengur samleið með kirkjunni.

Í nefndinni sem endurskoða skal kosningareglur sitja; Gísli Baldur Garðarsson formaður, dr. Þorkell Helgason, Inga Rún Ólafsdóttir, Pétur B. Þorsteinsson og sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.