Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Ályktun um skýrslu kirkjuráðs

Allsherjarnefnd skilaði nefndaráliti og ályktun vegna skýrslu kirkjuráðs. Í ályktun stendur:

Kirkjuþing 2009 hvetur söfnuði landsins til að standa þétt að baki Hjálparstarfi kirkjunnar með auknum fjárframlögum og kynningu á starfinu.

Kirkjuþing 2009 hvetur kirkjuráð til að leita leiða við að styðja safnaðarstarf erlendis og kanna nýjar leiðir til þess að fjármagna það.

Kirkjuþing 2009 fagnar framkominni trúfræðsluáætlun og námsskrám fyrir börn 0-18 ára. Nefndin hvetur til að gerð heildstæðrar námsskrár verði lokið fyrir kirkjuþing 2010.

Kirkjuþing 2009 ályktar að mikilvægt sé að kirkjuráð komi á framfæri við sóknir landsins hver ávinningurinn er af lögmætri skráningu eigna og réttinda sóknanna með þinglýsingu þeirra. Jafnframt séu eignir sókna skráðar á nafn sóknar/Þjóðkirkjunnar.

Kirkjuþing 2009 ályktar að prestar og söfnuðir sjái til þess að haldið verði vel utan um félagaskráningu í þjóðkirkjuna.

Í umræðum var rætt um mikilvægi þess að sóknir fylgdust með félagaskráningu. Margir væru óvitandi um eigin trúfélagaskráningu og hægt væri að benda fólki á slíkt þegar það leiti til kirkjunnar.

Einnig var rætt um það hvernig skrá skuli eignir sókna og skráningu þeirra. Samkvæmt upplýsingum allsherjarnefndar mun ekki skipta máli lagalega hvort eignir sókna skráðar á nafn sóknar/Þjóðkirkjunnar eða Þjóðkirkjunnar/sóknar. Það geti hins vegar verið mikið tilfinningamál í sóknum. Bent var á að þessi framsetning samræmdist ekki starfsreglum sem samþykktar hafa verið á kirkjuþingi 2009, í 7. máli, 2. gr.

Allsherjarnefnd lagði til að síðasta setning 4. mgr. falli niður en benti á að meðan krafist er núverandi skráningarforms þá tefji það skráningu í sóknum.

Biskup þakkaði stuðning við Hjálparstarfið og minnti á að álagið aukist en einnig að vel hafi verið tekið á móti fermingarbörnum víða um land sem söfnuðu fyrir Hjálparstarfið í þeirri viku er kirkjuþing stóð yfir.

Málið var samþykkt með áðurgreindum breytingum.