Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Sr. Magnús B. Björnsson flutti álit allsherjarnefndar um 23. mál, tillögu til þingsályktunar um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar.
Allsherjarnefnd fagnar því að unnið hefur verið vel að upplýsingamiðlun um þjóðkirkjuna á upplýsingasviði Biskupsstofu og vettvangi þjóðkirkjunnar á undanförnum árum. Hún minnir á mikilvægi markvissrar miðlunar til fjölmiðla og almennings um kirkjuna.
Nefndin telur mikilvægt að mörkuð sé skýr stefna í samskiptamálum. Með samskiptamálum er átt við samskipti og samtal við sóknarbörn, söfnuði, almenning, fjölmiðla og stofnanir í ólíkum miðlum. Stefna af þessu tagi markar sýn til næstu ára, styrkir innri og ytri upplýsingamiðlun og eflir leika og lærða um land sem sýnilega boðbera kirkju og trúar.
Stefnan taki til:
- grunngilda í samskiptastarfi kirkjunnar
- framtíðarsýnar
- innri og ytri samskipta
- sjálfsmyndar kirkjunnar sem samfélags um samskipti
- þjálfunar og fræðslu launaðra og ólaunaðra starfsmanna
- notkunar ólíkra miðla
- markhópa í samskiptum kirkjunnar
Vinnulag:
- Kallaðir verði til fulltrúar ólíkra hópa í starfshóp, horft verði til ólíkra aldurshópa, karla og kvenna, dreifbýli og þéttbýli o.s.frv. þannig að sjónarmið kirkjunnar sem heildar komi fram.
- Nefndin leggur til að upplýsingasvið Biskupsstofu komi að starfinu með formlegum hætti.
- Horft verði til skjalanna „Stefna og starfsáherslur 2004-2010“, greinargerðarinnar. „Upplýsinga- og fjölmiðlastefna. Ábendingar til starfshóps, biskups og kirkjuráðs“ og „Samband kirkju og fjölmiðla. Upplýsinga- og almannatengsl á vegum Þjóðkirkjunnar“.
- Horft verði til reynslu og sambærilegrar vinnu hjá systurkirkjum þjóðkirkjunnar.
- Kallað verði til upplýsingaþinga í héraði þar sem málaflokkurinn verði reifaður.
- Í stefnunni komi fram skýr starfsmarkmið.
- Drög að stefnu liggi fyrir í maí 2010.
- Ekki er gert ráð fyrir að greitt verði fyrir fundarsetu.
Samþykkt án umræðu.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 12/11 2009 16.22