Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

15. mál Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna

Bjarni Grímsson flutti álit fjárhagsnefndar um 15. mál Tillögu til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna.
Stærstu breytingarnar voru að fyrirsögn I. liðar verði svohljóðandi: Kirkjuþing 2009 heimilar kaup kirkjumálasjóðs á eftirtöldum fasteignum.
Að sama skapi verður fyrirsögn II. liðar:
Kirkjuþing 2009 heimilar sölu kirkjumálasjóðs á eftirtöldum fasteignum.
Framsögumaður ítrekaði að hér væri verið að veita heimildir um sölu, ekki að verið væri að ganga frá kauptilboðum.
Í umræðu var tekið undir að þetta væri til bóta en bent á að fljótt gengi á jarðir kirkjunnar ef seldar væru allar þær sem hér er heimilt að selja.

Lagt er til að 5. liður í II. kafla falli brott. Hann varðar tíu hektara landspildu úr landi prestssetursjarðarinnar Breiðabólsstaðar, Rangárvallaprófastsdæmi.

Nýr 5. liður varði Árnes I í Trékyllisvík á Ströndum, Húnavatnsprófastsdæmi og nýr 6. liður verði Háls II, Þingeyjarprófastsdæmi.

Samþykkt.