Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umhverfisstefna og umhverfisstarf

Umhverfisstefnan var flutt af allsherjarnefnd í nokkuð breyttri mynd þar sem hluti greinargerðarinnar var settur inn í tillögu um stefnuna. Dagur Jóhannsson flutti málið fyrir hönd nefndarinnar.
Lagt er til að heiti tillögunnar verði:
Tillaga til þingsályktunar um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar og umhverfisstarf í söfnuðum.

Í nýrri útgáfu er fyrri hluti tillögu nefndarinnar svohljóðandi:

Kirkjuþing 2009 samþykkir eftirfarandi umhverfisstefnu og áætlun um umhverfisstarf í söfnuðum og stofnunum þjóðkirkjunnar og felur kirkjuráði að fylgja eftir framkvæmd hennar:

Lífið og tilveran öll er sköpunarverk Guðs. Allt sem Guð skapar er gott og viðheldur lífinu, elur og nærir. Lífið er heilagt og hefur eigið gildi. Guð felur manninum að vera ráðsmaður sköpunarverksins og um leið er hann hluti þess. Þeirri köllun er honum ætlað að sinna af umhyggju og virðingu fyrir því sem lifir og grær. Lotning fyrir höfundi sköpunarverksins leiðir til ábyrgðar gagnvart því lífi og náttúru sem hann skapar. Frammi fyrir hinu sístæða sköpunarverki erum við hvött til að vera samverkamenn Guðs í að skapa betra líf og réttlátari heim.

Lifnaðarhættir mannkyns á síðustu öldum hafa valdið röskun á náttúru jarðar.
Þessar breytingar kalla á, að við endurskoðum þá lifnaðarhætti og gildismat, vinnum gegn ofneyslu og sóun og greiðum veg ráðdeildar og virðingar.

Síðan er tillagan samhljóða upphaflegri tillögu.

Gerð var athugasemd við 1. málsgrein, 1. hluta, "Lífið og tilveran öll er sköpunarverk Guðs. Allt sem Guð skapar er gott og viðheldur lífinu, elur og nærir." Bent var á misræmi milli þessa og greinargerðar. Þarna gæti textinn skilist sem svo að sköpunin viðhaldi lífi, ali og næri.

Gerð tillaga að breytingu: Allt sem Guð skapar er gott. Góður Guð viðheldur lífinu...

Samþykkt samhljóða.