Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Framsögu um 5. mál, Nefndarálit um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar, hafði sr. Leifur Ragnar Jónsson.
Í þingsályktun er kirkjuráði falið að vinna áfram að þessu máli og taka aukið tillit til ólíkra aðstæðna í dreifbýli og þéttbýli. Áfram verði mótaðar tillögur um samstarfssvæði með tilliti til framtiðarskipunar sókna, prestakalla og prófastsdæma.
Einnig verði gerð tillaga um starfsmannahald í sóknum og í sérþjónustu, um presta, djákna, organista og starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi, að höfðu samráði við þar að lútandi aðila.
Gunnlaugur kom með breytingartillögu sem viðbót við síðustu málsgrein þannig að hún hljóði svo:
Einnig verði gerð tillaga um skipulag og þjónustu á vegum stjórnsýslu og einstakra verkefna á sviði hennar á biskupsstofu, um starfsmannahald í sóknum og í sérþjónustu, um presta, djákna, organista og starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi, að höfðu samráði við þar að lútandi aðila.
Samþykkt með 10 greiddum atkvæðum.
Tillagan var svo samþykkt í heild sinni.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 12/11 2009 12.09