Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Flutningur verkefna á landsbyggðina

Tvö mál er snúa að hýsingu verkefna kirkjunnar á landsbyggðinni voru sameinuð og flutti fjárhagsnefnd málið. Framsögumaður var Þorgrímur Daníelsson. Þetta voru 16. mál og 22. mál.

Kirkjuþing 2009 ályktar að fela kirkjuráði að endurskoða starfshætti kirkjunnar með flutningi verkefna eða stofnana af höfuðborgarsvæðinu á landsbyggðina. Í því sambandi verði stefnt að því að hýsa verkefni og málaflokka innan prófastsdæma og hjá vígslubiskupum.

Í framsögu kom fram að meðal annars væri litið til starfa á fræðslusviði, svo sem fermingarefni og barnaefni, einni netsjónvarpið og tónskóli Þjóðkirkjunnar.

Í umræðum var hvatt til þess að nefnd um heildarskipan á þjónustu kirkjunnar taki mið af þessu í sinni vinnu.

Málið var samþykkt.

fjárhagsnefnd lagði einnig til að sá hluti tillögu 16. máls er fjallar um aukið vægi sjálfboðaliðastarfs innan kirkjunnar verði vísað til allsherjarnefndar og sameinað 21. máli.
Það var samþykkt.