Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
20. mál Tillaga til þingsályktunar um fjármál sókna var tekið til annarrar umræðu á þingfundi er hófst kl. 9. Helga Halldórsdóttir hafði framsögu um málið. Breytingartillga kom fram við málið frá fjárhagsnefnd, svohljóðandi:
Við 5. grein starfsreglnanna að starfsreglna um sóknarnefndir nr. 732/1998 bætist við eftirfarandi málsgrein:
Ef fjárhag sókna er stefnt í tvísýnu með miklum hallarekstri eða skuldasöfnun þannig að það hamli eðlilegu safnaðarstarfi er kirkjuráði heimilt að grípa inn í reksturinn, t.d. með skipun fjárhaldsmanns eða eftirlitsnefndar.
Í umræðu um málið var rætt um hvort lagalegur grundvöllur væri fyrir slíkri grein þar sem hún takmarkar völd sóknarnefndar. Fjárhagsnefnd taldi slíkt heimilt.
Þar sem um er að ræða nýja tillögu um starfsreglubreytingu var henni vísað til annarrar umræðu, sem er þriðja umræða máls.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 12/11 2009 9.38