Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Sr. Halldór Gunnarsson hafði framsögu um mál 25 sem er Tillaga til þingsályktunar um viðaukasamning við Samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir.
Samkvæmt því verður samþykktur viðaukasamningur við samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997. Viðaukasamningurinn tekur mið af því efnahagsástandi sem hér ríkir og kveður á um niðurskurð á framlögum ríkisins miðað við fyrri samning.
Þar sem um er að ræða samning var ekki til umræðu á þinginu að breyta texta hans og lýstu fundarmenn skilningi á því. Bent var á að hér er um tímabundið samkomulag að ræða.
Þá flutti Hjalti Zóphóníasson mál dómsmála-og mannréttindaráðherra um Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Þar er kveðið á um fjárhagsskerðingu vegna viðaukasamningsins og einnig skerðingu á framlagi til Kristnisjóðs á árinu 2010.
Málunum var vísað til fjárhagsnefndar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 10/11 2009 16.33