Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir mælti fyrir 23. máli kirkjuþings, tillögu til þingsályktunar um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar.
Í máli hennar kom fram að nauðsynlegt er að setja fram heildstæða stefnu í samskipta- og upplýsingamálum. Það hafa komið fram óskir og von um að þessi málaflokkur verði settur á oddinn. Tillagan tekur bæði til innri og ytri samskipta og sér þetta mál sem mikilvægt málefni hjá kirkjunni.
Í umræðum kom fram vilji til að styðja við innri og ytri samskipti og að æskilegt er að innviðir upplýsingamiðlunar og samskipta séu styrktir. Kirkjan er framarlega miðað við ýmsar aðrar félagshreyfingar í landinu. Einnig var nefnt að mikilvægt er að kirkjan nýti tækifærin sem bjóðast og hafi frumkvæði. Þá var bent á gildi þess að launað og ólaunað starfsfólk kirkjunnar sé sér meðvitað um að öll erum við að miðla upplýsingum um kirkjuna.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar.
Árni Svanur Daníelsson, 10/11 2009 15.55