Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Kristín Þórunn Tómasdóttir flutti framsögu um mál nokkurra þingmanna, 22. mál. Tillögu til þingsályktunar um hýsingu verkefna þjóðkirkjunnar og verkefnisstjórnun. Þar er lagt til að hluti verkefna biskupsstofu sé hýstur hjá prófastsdæmum. Í máli framsögumanns kom fram að þetta mál tengdist máli 16 og gott væri ef þau væru rædd saman. Taldi framsögumaður að þetta frumvarp bætti nýtingu starfsaðstöðu og starfsfólks og hvetti til aukins samstarfs.
Engar umræður voru um málið. Því var vísað til fjárhagsnefndar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 10/11 2009 15.03