Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Sjálfboðaliðastefna rædd

Í dag var tekið fyrir á kirkjuþingi 21. mál sem er tillaga til þingsályktunar um stefnumörkun í sjálfboðaliðastarfi kirkjunnar. Í umræðum kom fram að málið þykir mikilvægt og brýnt.

Bent á að líklega væri þjóðkirkjan langstærsti vettvangur sjálfboðaliðastarfs í landinu. Nefnt var að mikilvægt er að þjálfa starfsfólk kirkjunnar í að leiða sjálfboðaliðastarf og halda utan um sjálfboðaliðana. Mikilvægt er fyrir kirkjuna að gefa fleirum tækifæri til að vera virkir þátttakendur í kirkjustarfinu.

Þá var lagt til að 16., 21. og 22. mál þingsins væru rædd saman. Málinu var vísað til allsherjarnefndar.