Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Eftirlit með fjármálum sókna

20. mál. Tillaga til þingsályktunar um fjármál sókna

Jón Helgi Þórarinsson var framsögumaður í máli fimm kirkjuþingsmanna, Tillögu til þingsályktunar um fjármál sókna. Þar er lagt til að gerðar séu starfsreglur um fjármál sókna sem veiti sérstakri eftirlitsnefnd heimild til að grípa inn í rekstur sókna ef fjárhag þeirra er stefnt í tvísýnu með miklum hallarekstri eða skuldasöfnun.
Í umræðum kom fram að þessar starfsreglur gætu verið viðbót við 5. grein starfsreglna um sóknarnefndir nr. 732/1998.
Einn framsögumaður taldi að þetta eftirlit væri þegar til staðar hjá próföstum en aðrir töldu starfsreglur of veikar og erfitt að stöðva framkvæmdir þó að ljóst sé að engir möguleikar eru til þess að fjármagna þær.
Spurt var um lagagrunn slíkra starfsreglna.
Málinu var vísað til fjárhagsnefndar.