Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umræður um fasteignamál kirkjunnar, leigu prestssetra og hlunnindi

Kristján Björnsson var framsögumaður í 7. máli sem flutt var af kirkjuráði, tillögu að starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar. Miklar umræður spunnust um málið og tóku 13 til máls, þrír oftar en einu sinni.
Í umræðunni kom fram bæði stuðningur og andstaða við tillöguna. Sumum þótti hún ganga of langt hvað varðar húsaleigu, öðrum að hún gengi ekki nógu langt.
Meðal þess sem fram kemur er hækkun á lágmarksleigu og breytingar við útreikningar á húsaleigu prestssetra. Deilt var um hvort rétt væri að hækka leigu prestssetra núna, þegar laun presta hafa verið skert og fleiri skerðingar varðandi aðstöðu og hlunnindi. Bent var á annan kostnað sem prestar bera af því að vera skuldbundnir til að búa í prestsbústað og einnig því að bústaðurinn er vinnustaður og oft samfélagsmiðstöð. Til viðmiðunar nefndu aðrir almennan leigumarkað og húsaleigu í félagslegu kerfi. Margir töldu rétt að hafa líka hámarksleigu eins og lágmarksleigu.
Þá var bent á að gott væri ef hluti af arði hlunninda rynni til safnaðarins og kirkjubyggingarinnar. Bent var á móti á að arður af hlunnindum fari oft að stórum hluta til prestssetranna í viðhald.
Bent var á að ekki væri skýr hver kostnaður væri við stjórnun fasteignasviðs kirkjunnar og spurt um kostnað við landsúttektar þegar prestsetur er metið fyrir afhendingu.