Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Sigríður M. Jóhannsdóttir var framsögumaður 13. máls sem var Tillaga til staðfestingar á jafnréttisstefnu kirkjunnar.Í umræðum að lokinn framsögu var gerð athugasemd við nafnið jafnréttisstefna. Hugtakið jafnrétti hefur víkkað í umræðu á almennum vettvangi og er nú notað einnig með skírskotun til ýmissa minnihlutahópa. Því gæti nafn stefnunnar verið „Stefna þjóðkirkjunnar um jafnan rétt kvenna og karla.“ Talsvert var spurt um kostnað við jafnréttisáætlunina sem fylgir stefnunni. Þá var lýst áhyggjum af því hvað það fæli í sér að setja markmið sem gæti að kynjasamþættingu í störfum sálmabókarnefndar. Bent var á kynjahlutfallið á kirkjuþingi og í nefndarstörfum þingsins. Ekki fékkst kostnaðaráætlun en bent var á að ekki væru allir þættir hennar kostnaðarsamir. Hins vegar væri þarna það nýmæli að tilgreind væru verkefni, ábyrgð og tímatakmörk. Málinu var vísað til allsherjarnefndar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 21.14