Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
12. mál Tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings var felld í atkvæðagreiðslu í lok fyrstu umræðu. Greiddu 12 atkvæði með og 12 á móti og féll hún á jöfnu. Sr. Kristján Björnsson flutti málið fyrir kirkjuráð.
Í umræðu um málið var meðal annars rætt um þann möguleika að ganga lengra en þessi tillaga gerir og hafa almennar kosningar til kirkjuþings, til dæmis samfara sveitarstjórnarkosningum. Töldu sumir tímabært að ræða slíkt en aðrir að það væri dýrt og óhagkvæmt í framkvæmd. Einnig var ræddur sá möguleiki að nýta rafræna kosningu til að fjölga þeim sem kjósa til kirkjuþings.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun kjördæma og með því fjölgun atkvæða á bakvið hvern þingmann. Ekki voru allir sáttir við þá stækkun og bentu sumir þingfulltrúar á að þá ykist enn vinna þeirra sem eru á þinginu sem leikmenn og starfa ekki innan kirkjunnar því að hluti starfa þeirra sé að kynna þingmál milli þinga, sækja fleiri héraðsfundi, leiðarþing og önnur störf sem myndi fjölga. Lesin voru mótmæli gegn stækkun frá Leiðarþingi Eyjafjarðar og Þingeyjarprófastsdæmis. Þá var bent á misræmið sem er milli atkvæða að baki leikmönnum annars vegar og vígðum hins vegar. Í seinna tilvikinu væri ef til vill hægara um vik að stækka. Nokkrir þingfulltrúar bentu á að lítil reynsla væri komin á núverandi kosningareglur og betra væri að láta reyna betur á þær.
Alls tóku 16 til máls undir þessum lið auk frummælanda. Málið var sem fyrr segir fellt í fyrri umræðu og var því ekki vísað til nefndar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 20.11