Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Rekstrarkostnaður prestsembætta og prófastsstarfa

Halldór Gunnarsson flutti mál Kirkjuráðs nr. 11: Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819 1999. Hér er um að ræða tillögur um skerðingu á embættiskostnaði presta, svo sem greiðslu vegna vinnuaðstöðu. Í umræðunni var bent á að skerðing leggst misjafnlega á prestana eftir búsetu og aðstæðum og óskað eftir því að verði slík kjaraskerðing samþykkt skuli skýrt tekið fram að hér sé um tímabundna ráðstöfun að ræða.
Rætt var um kostnað vegna hempukaupa sem á að skera niður og spurt hvort ekki væri hægt að færa kaup á þeim til Íslands. Bent var á að norska kirkjan hefði hætt að kaupa hempur fyrir nýja presta á níunda áratugnum og eftir það hefði alba verið notuð. Ef hér væri um að ræða tilraun í slíka átt væri betra að gera það beint og fara ekki krókaleiðir.
Fram kom munnleg tillaga um að leggja niður Tónskóla Þjóðkirkjunnar til að spara en bent var á að slíkur sparnaður kæmi ekki þessum lið við því að sá kostnaður greiddist af Kirkjumálasjóði og þar væri einnig verið að leita sparnaðar á öllum sviðum.
Málinu var vísað til fjárhagsnefndar.