Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Sigríður M. Jóhannsdóttir flutti mál kirkjuráðs nr. 10 sem er Tillaga að starfsreglum um æskulýðsþing kirkjunnar. Líflegar umræður voru um málið og bar einkum þrennt hæst. Í fyrsta lagi var deilt um hvort slíkt þing ætti að kjósa tvo fulltrúa sem sætu kirkjuþing með málfrelsi og tillögurétt. Bent var á að það skapaði fordæmi fyrir aðra hópa innan kirkjunnar og þyrfti að skoða málið með heildarsýn í huga.
Í öðru lagi var rætt um það hvernig staðið verði að vali innan prófastsdæmanna og hvort slíkt ætti að vera á hendi prófasts eða hvort setja ætti aðrar reglur. Í þriðja lagi var rætt um nafnið. Kirkjuþing unga fólksins hefur verið haldið tvisvar sinnum á nýliðnum árum. Hvatt var til þess að því nafni yrði haldið og lagði sr. Arna Grétarsdóttir fram breytingartillögu þar að lútandi.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 18.22