Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umhverfisstefnan kynnt og rædd

Jóhann Björnsson var framsögumaður um 9. mál: tillögu til staðfestingar á umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar. Eftir framsögu var Ljósaskrefið, handbók Þjóðkirkjunnar fyrir umhverfisstarf í söfnuðum, kynnt.
Nokkur umræða var um málið. Þingmenn lýstu ánægju með að umhverfismál væru á dagskrá og með Ljósaskrefið. Bent var á að umhverfismál væru í eðli sínu pólitísk og spurt hvort ekki þyrfti einnig að taka afstöðu í þeim stóru umhverfismálum sem tekist er á um í samfélaginu, svo sem stóriðju og virkjunum. Einnig var bent á að stefnan sem slík hlyti að spanna dýpri umræðu, þarna vantaði guðfræðilega greinargerð um málið. Sem tillaga um umhverfisstarf í söfnuðum væri þetta þó afar gott framtak. Málinu var vísað til allsherjarnefndar.