Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umræður um 6. mál.

Pétur Hafsteinn, forseti kirkjuþings kynnti 6. mál, Tillögu að starfsreglum um þingsköp kirkjuþings. Í greinargerð kemur fram að horft hafi verið til laga um þingsköp Alþingis við samningu þessara tillagna. Í þeim er að finna aukna áherslu á sjálfstæði kirkjuþings gagnvart framkvæmdarvaldi þjóðkirkjunnar og er hlutverk forseta kirkjuþings eflt.
Alls tóku sjö til máls í umræðum og lýstu menn almennt ánægju með tillögurnar og fögnuðu auknu sjálfstæði kirkjuþings. Rætt var um þann tímaramma sem settur er fyrir kynningu mála og skil þeirra til kirkjuþings og því velt upp hvort halda ætti vor og haustþing.
Málinu var vísað til löggjafarnefndar.