Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Biskup Íslands flutti framsögu um 4. mál fyrir hönd kirkjuráðs. Þetta mál kemur nú til kirkjuþings öðru sinni eftir umræðu á prestastefnu og víðar.
Sex þingmenn tóku til máls um þann lið. Meðal þess sem fram kom í umræðunni var spurningin um það hvar þetta ætti heima í laga og reglugerðarumhverfi kirkjunnar og hvort þættir þess ættu ekki lengur við vegna boðaðra lagabreytinga. Þá var beðið um skýrari upplýsingar um það hvað gera ætti við kirkjur sem væru afhelgaðar og spurt hvort rétt væri að hafa inni ákvæði um að hempa væri embættisklæðnaður, í ljósi kostnaðar við nýja hempu og pípukraga og þess hve algeng notkun ölbu er í helgihaldi.
Þingforseti benti á heimild kirkjuþings til að setja starfsreglur og til að álykta um kenningarleg málefni, sem og samþykkja stefnu kirkjunnar í ýmsum málum, svo sem jafnréttisstefnu og umhverfisstefnu. Skoða mætti þessar tillögur út frá þessum möguleikum.
Frummælandi benti á að þetta frumvarp byggði á gildandi lögum. Varðandi aflagðar kirkjur þá væri ekki heimilt að rífa þær vegna friðunarákvæða og væri misjafnt hvað gert væri við þær.
Málinu var vísað til löggjafarnefndar og annarrar umræðu.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 14.45