Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umræður um 5. mál

Umræðum um 5. mál, Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu Þjóðkirkjunnar var fram haldið í morgun.

Alls tóku 20 til máls um þessa ályktun auk frummælanda, þar af fimm tvisvar og voru skiptar skoðanir um málið. Meðal athugasemda sem komu fram í síðari hluta var hvernig hægt væri að tala um að sóknir væru grunneining kirkjunnar ef ekki væri gert ráð fyrir neinum messum í sóknum þar sem færri en 50 búa. Lagt var til að því ákvæði yrði breytt. Margir ræddu frekar hugmyndina um samstarfssvæði sókna og einnig var mynt á hugmynd sem kynnt var á kirkjuþingi fyrir nokkrum árum um sóknasamlag, þar sem nokkrar sóknir nýta sjóði sína saman.
Gagnrýnt var að nefndin skyldi hafa farið inn á svið biskupafundar með því að gera að ákveðnu marki tillögur um það hvar prestur sitji og hvernig starfshlutfall skiptist, svo sem hvernig hægt væri að hugsa sér hálft embætti, hvernig slíkt ætti að skiptast. Því til svars var bent á að nefndin hefði verið beðin um slíkar tillögur.
Bent var á að þessar tillögur stönguðust á við tillögur um fækkun prófasta því að þarna væri gert ráð fyrir frekari vinnu af hendi prófasts, að skipuleggja samstarfið.
Þingmenn lýstu einnig ánægju með skjalið og þá tilraun sem þarna er gerð til að skilgreina þjónustu kirkjunnar út frá sókninni og skilgreina hvers sóknarbörn geta vænst af kirkjunni og hvaða viðmið prestar eiga að hafa í starfi sínu. Varpað var fram þeirri spurningu hvar þessar tillögur ættu heima í regluverki kirkjunnar.
Málinu var vísað til Löggjafanefndar og annarrar umræðu.