Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Hjálparstarf kirkjunnar kynnt á Kirkjuþingi

Kirkjuþingsmenn fengu góða kynningu á Hjálparstarfi kirkjunnar á fundi í dag. Jónas Þórisson, framkvæmdarstjóri, sagði frá starfinu, bæði innanlands og utan, meðal annars frá alþjóðlegu samstarfi og frá samstarfi heima við. Í máli hans kom fram að eftirspurn eftir innanlandsaðstoð hefur aldrei verið jafn mikil og jafnframt góðar undirtektir við innanlandssöfnun. Þar á meðal hafa söfnuðir landsins og prófastsdæmi sent aukna aðstoð til starfsins. 50 söfnuðir styðja að auki HK reglulega, en þeir voru fleiri fyrir nokkrum árum svo að þar er verk að vinna. Einnig kom fram að Hjálparstarfinu tekist að standa við skuldbindingar erlendis, þrátt fyrir gjaldmiðilshrun. Dr. Haukur Ingi Jónasson sagði m.a. frá stefnumótun starfsins og breytingum sem hafa orðið á stjórn þess varðandi virkni og þátttöku.

Eftir framsöguerindi voru almennar umræður. Lýst var ánægju með það faglega starf sem Hjálparstarf kirkjunnar vinnur og sóknir hvattar til að nýta sér samstarf við það og faglega aðstoð. Þá var Hjálparstarfið hvatt til að efla kynningu á landsbyggðinni. Einnig var óskað eftir frekara efni í líkingu við þá góðu kynningu sem sýnd var hér á kirkjuþingi til að sýna í sóknum. Lýst var ánægju með starf og efni varðandi Breytendur (Changemakers) sem er ungt fólk í söfnuðunum.

Bent var á að mögulega þurfum við sem kirkja að axla meiri ábyrgð á komandi árum en til þessa og þurfum að setja okkur það markmið að Hjálparstarfið þurfi ekki að líða þó að bakslag verði í framlögum annarra aðila til þess.

Biskup Íslands spurði í lokin hvernig við gætum unnið að því að sóknirnar legðu sér þetta á hjarta. Hjálparstarf kirkjunnar er ekki stór stofnun, en hún er hluti af stærsta hjálparneti heims, sem er hjálparstarf kirknanna, sem skipulagt er meðal annars af Lútherska heimssambandinu og Heimsráði kirkna. Styrkleikurinn hér er nándin við grasrótina. Við eigum mikið óunnið með að gera þetta ljóst í okkar eigin samfélagi, skýra þá ábyrgð sem við berum sem kristið fólk í hinu stóra samfélagi.

Samskot í messu er talsverður þröskuldur. Það er uppeldisverkefni innan kirkjunnar sem tekur tíma að kenna fólki og gefa því færi á að "gefa til guðsþakkar" - að gefa af sér, líka peninga, öðrum til gleði og gagns.

Jónas Þórisson þakkaði ábendingarnar og hvatti kirkjuþingsmenn til að vera stuðningur áfram við starfið og greiða því götu í héraði.

Forseti kirkjuþings beindi því til Allsherjarnefndar að taka málefni Hjálparstarfs kirkjunnar til umræðu.