Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Miklar umræður um 5. mál.

Þingfundur hófst kl. 13.30 í dag og var tekið fyrir 5. mál, Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð lagði málið fram en flutningsmaður var Jón Helgi Þórarinsson. Miklar umræður spunnust um málið og tóku ellefu til máls.
Fram kom hörð gagnrýni frá sumum þingmanna bæði á skipan og niðurstöður nefndarinnar. Gagnrýni varðandi skipan snéri að því að þar væri enginn sem búsettur er á landsbyggðinni. Varðandi niðurstöður var meðal annars bent á að þetta þýddi niðurskurð um ellefu presta á landsbyggðinni en aukningu um fjóra í suðvesturhluta landsins. Þá var gagnrýnt að málið væri ekki byggt upp út frá þörfum sóknarbarna. Frummælandi benti á að vinna nefndarinnar hafi einmitt haft útgangspunkt í því hvaða þjónustu sóknarbörn, hvar sem er á landinu, eigi rétt á.
Aðrir lýstu ánægju með skýrsluna og vildu frekari umræður um hana heima í héraði, þar sem hún tæki á málum sem við þyrftum að taka á.
Fjórir voru á mælendaskrá þegar gert var fundarhlé og verður umræðu fram haldið á morgun.