Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Þrjú mál afgreidd til nefnda

Á kirkjuþingi í dag voru þrjú mál tekin til fyrri umræðu og afgreidd til nefnda. Þetta voru 1. mál, Skýrsla kirkjuráðs, 2. mál, Fjármál Þjóðkirkjunnar og 3. mál, Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.

Biskup Íslands var framsögumaður um skýrslu kirkjuráðs. Sex þingmenn tóku til máls undir þeim lið auk framsögumanns. Fram kom fyrirspurn um æskulýðsstarf og hvatt til þess að ekki yrði niðurskurður á því sviði. Þá kom fram fyrirspurn um það hvers vegna ekki hefði verið farið að samþykkt kirkjuþings 2008 og ráðinn upplýsingafulltrúi í fullt starf á biskupsstofu.

Jóhann Björnsson mælti fyrir 2. máli, um fjármál kirkjunnar. Þrettán tóku til máls undir þeim lið. Mest var rætt um breytingar á samningi ríkis og kirkju og fyrirhugaðan niðurskurð, bæði í sóknum og hjá yfirstjórn kirkjunnar. Einnig bárust athugasemdir um breytingar á embætti presta erlendis.

Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup, mælti fyrir 3. máli, Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007. Að framsögu lokinni var 21 ræða haldin um málið auk andsvars frummælanda. Meðal þess sem fram kom í umræðunni var spurningin um á hvern hátt væri unnið með sóknarnefndum og öðrum í héraði að slíkum tillögum og hvernig væri staðið að kynningu þeirra. Einnig var kallað eftir því að í stað þess að sameina prestaköll við starfslok presta væri unnið eftir ákveðinni stefnu sem tæki tillit til þjónustuþarfar. Þá var deilt á og rætt um tillögur varðandi fækkun prófasta.

Ein breytingartillaga kom fram um málið og hljóðar svo:
Kirkjuþing 2009 samþykkir breytingu við 1. gr. tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007:

Við 12. gr. Starfsreglana verði gerðar eftirfarandi breytingar:
1. Árnes-, Rangárvalla- og Skaftafellsprófastsdæmi sameinist í Suðurprófastsdæmi.
2. Selfoss- og Hraungerðisprestaköll, Árnesprófastsdæmi sameinist. Tveir prestar þjóni prestakallinu, sóknarprestur og prestur. Prestssetur verði ekki í hinu nýja prestakalli.
flutningsmaður var sr. Kristján Björnsson.

Upptökur af fyrstu þingfundum verða settar inn eins fljótt og hægt er.

Fjöldi mynda er kominn á myndasvæði kirkjunnar.