Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Kirkjuþing 2008 samþykkti að beina þeim tilmælum til dóms - og kirkjumálaráðherra að hann flytji frumvarp til laga um ný þjóðkirkjulög, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar.
Í frumvarpinu er leitast við að einfalda almenna löggjöf frá Alþingi um málefni Þjóðkirkjunnar og færa ábyrgð og ákvarðanatöku í þeim efnum í enn ríkara mæli til kirkjuþings. Verði frumvarpið samþykkt á Alþingi mun reynast nauðsynlegt að endurskoða og samræma starfsreglur Þjóðkirkjunnar í ljósi þess.
Eftirfarandi tilllaga til þingsályktunar um samningu starfsreglna var samþykkt á Kirkjuþingi:
Kirkjuþing 2008 samþykkir að leggja til við Kirkjuráð að fela lagahópi, fjármálahópi, ráðgjafarhópi um fasteignir og kirkjustarfshópi kirkjuráðs undir verkstjórn forseta kirkjuþings að semja og samræma starfsreglur á grundvelli frumvarps til nýrra þjóðkirkjulaga.
Verði frumvarpið að lögum á Alþingi veturinn 2008 - 2009 skal leggja tillögur að nýjum eða breyttum starfsreglum fyrir Kirkjuþing 2009.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 28/11 2008 15.30