Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

12 athugasemdir bárust

Kirkjuþing 2008 kom saman í morgun eftir fögurra vikna þinghlé. Þinghlé var gert til að gefa færi á umræðum um frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga.

Frumvarpið var samið af kirkjulaganefnd, skipaðri af kirkjuráði árið 2007. Það var rætt í fyrri umræðu Kirkjuþings 2008 og samþykkt að vísa málinu til löggjafarnefndar þingsins. Ákveðið var að fresta síðari umræðu á Kirkjuþingi til 28. nóvember nk. svo að frumvarpsdrögin ásamt greinargerð geti fengið umfjöllun heima í héraði samkvæmt nánari ákvörðun prófasta og héraðsnefnda í hverju prófastsdæmi, svo og hjá Prestafélagi Íslands, Djáknafélagi Íslands og Leikmannaráði.

Alls bárust 12 athugasemdir vegna frumvarpsins og kynnti formaður löggjafanefndar, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, þær í áfangaskýrslu kirkjulaganefndar á þingfundi í morgun. Eftir framsögu formannsins voru umræður um frumvarpið og höfðu ellefu tekið til máls er gert var hádegishlé.

Upptökur af þingfundi eru komnar á vef kirkjuþings undir Upptökur.