Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Frumvarp til nýrra Þjóðkirkjulaga

Fyrir kirkjuþingi 2008 liggur frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga, sem samið var af kirkjulaganefnd, skipaðri af kirkjuráði. Frumvarpið var rætt í fyrri umræðu og samþykkt að vísa málinu til löggjafarnefndar þingsins. Ákveðið var að fresta síðari umræðu á kirkjuþingi til 28. nóvember nk. svo að frumvarpsdrögin ásamt greinargerð geti fengið umfjöllun heima í héraði samkvæmt nánari ákvörðun prófasta og héraðsnefnda í hverju prófastsdæmi, svo og hjá Prestafélagi Íslands, Djáknafélagi Íslands og Leikmannaráði.

Kirkjulaganefnd hefur farið yfir umræðu, ábendingar og tillögur á kirkjuþingi og hefur í dag gengið frá endurskoðuðu frumvarpi og athugasemdum. Frumvarpið ásamt meðfylgjandi athugasemdum er aðgengilegt á vef kirkjunnar.

Samkvæmt framanskráðu er gefinn kostur á að veita umsögn um frumvarpið sem berast skal Guðmundi Þór Guðmundssyni, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, hið fyrsta og eigi síðar en 26. nóvember 2008. Senda má umsagnir í tölvupósti á netfangið kirkjan hjá kirkjan.is.