Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Ályktun vegna efnahagsástandsins

Kirkjuþingi 2008 var frestað kl. 18 í dag. Var þá lokið afgreiðslu allra þeirra mála er fyrir þinginu lágu nema fjórða máls, frumvarp um endurskoðun á þjóðkirkjulögum.

Verður aflað umsagna um frumvarpið innan kirkjunnar og það tekið fyrir að nýju á fundi Kirkjuþings þann 28. nóvember næstkomandi.

Ályktun vegna efnahagsþrenginga

Meðal þess sem samþykkt var á þinginu var ályktun vegna þeirra efnahagsþrenginga sem blasa við Íslendingum. Í ályktuninni eru söfnuðir Þjóðkirkjunnar eru hvattir leita nýrra leiða og vera vakandi fyrir þeim sem þurfa aðstoðar við. Söfnuðir eru meðal annars hvattir til að veita aðstöðu í kirkjum og safnaðarheimilum endurgjaldslaust fyrir starf sem miðar að því að styðja og styrkja fólkið í samfélaginu við þessar aðstæður.

Í ályktuninni er minnt á að Hjálparstarf kirkjunnar hefur að undanförnu fundið fyrir verulegri aukningu hjálparbeiðna innanlands. Margir sem koma eru að leita aðstoðar í fyrsta sinn. Kirkjuþing hvetur Kirkjuráð, héraðssjóði, sóknarnefndir og einstaklinga, sem aflögufærir eru, til að leggja sitt að mörkum til Hjálparstarfsins. Kirkjuþing hvetur einnig stjórnvöld og sveitarfélög til að láta skólastarf og forvarnavarstarf njóta forgangs þegar skera þarf niður.

Einnig er bent á að margir þeirra sem nú glíma við alvarlegan fjárhagsvanda fá ekki aðstoð samkvæmt núverandi viðmiðunarreglum. Kirkjuþing hvetur ríkisstjórn og sveitarfélög til að gefa sérstakan gaum að því.

Kirkjuráð leggi fram fjármuni
Efnahagsmál bar oft á góma á þinginu, bæði áhrif núverandi ástands á samfélagið og hvernig það horfir við kirkjunni. Þar má nefna að í nefndaráliti þingsins um fjármál Þjóðkirkjunnar er lagt til á að fjárhagsáætlun 2009 verði lagðir fram fjármunir til þess að styrkja söfnuði og prófastsdæmi í stuðningsstarfssemi vegna efnahagsþrenginga.

Kirkjuþing veitti einnig Hjálparstarfi kirkjunnar 1,5 milljónir við upphaf þingsins og er þess vænst að það verði notað í innanlandsstarf fyrir jólin.

Alls lágu 22 þingmál fyrir að þessu sinni.