Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Ellefu mál voru tekin fyrir á þingfundi er hófst kl. 13.20.
Fyrst var haldið áfram síðari umræðu um 14. mál: Tillaga að staðfestingu stofnskrár fyrir Rannsóknarstofnun í trúarbragðafræðum og guðfræði. Hún var samþykkt nokkuð breytt, meðal annars verður nafn stofnunarinar Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar, rannsókna- og fræðaseturs í trúarbragðafræðum og guðfræði.
Þá var tekið fyrir 7. mál, síðari umræða: Tillaga til þingsályktunar um sérþjónustu kirkjunnar. Kirkjuþing 2008 beinir því til kirkjuráðs að tillaga til þingsályktunar um sérþjónustu kirkjunnar, samkvæmt 7. máli kirkjuþings 2008 verði unnin áfram sem hluti af 5. máli kirkjuþings 2008 um heildarskipan þjónustu kirkjunnar.
Næst á dagskrá var síðari umræða 5. máls, sem er Tillaga til þingsályktunar um heildarskipan þjónustu kirkjunnar. Kirkjuþing 2008 beinir því til kirkjuráðs að sameina í eitt skjal skýrslu um heildarskipan þjónustu kirkjunnar, 5. mál kirkjuþings 2008, samþykktir um innri málefni kirkjunnar, 6. mál 2008 og þingsályktun um sérþjónustu kirkjunnar, 7. mál kirkjuþings 2008.
Jafnhliða verði skoðað hvort bæta skuli inn í það skjal viðeigandi starfsreglum eða ákvæðum í þeim og til verði einn bálkur er fjalli um grunnforsendur, umfang og umgjörð þjónustu kirkjunnar.
Málið í heild sinni verði til umfjöllunar á kirkjuþingi 2009.
Þá fór fram síðari umræða um 8. mál sem er Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna. Málið var samþykkt með nokkrum breytingum.
Síðari umræða 16. máls sem er Tillaga til þingsályktunar um skiptingu jarðarinnar Mosfells, Kjalarnessprófastsdæmi var tekin fyrir næst. Kirkjuþing samþykkir að jörðinni Mosfelli, Mosfellsbæ, Kjalarnessprófastsdæmi, verði skipt þannig að prestssetrið verði 1,9 ha landspilda umhverfis prestsbústaðinn á Mosfelli og nefnist Mosfell I er verði áfram prestssetur prestakallsins. Það sem eftir stendur af jörðinni nefnist Mosfell II. Afmörkuð verði hæfileg lóð úr Mosfelli II umhverfis Mosfellskirkju sem tilheyri kirkjunni.
12. mál, Tillaga til þingsályktunar um fræðsluáætlun fyrir börn og unglinga var einnig tekin fyrir. Kirkjuþing 2008 samþykkir að fela biskupi Íslands að gera áætlun um fræðslu um kristna trú og starf meðal barna og unglinga á grunni fræðslustefnu þjóðkirkjunnar, jafnt í söfnuðum landsins sem á öðrum vettvangi. Framkvæmdaáætlun ásamt árlegri kostnaðaráætlun verði lögð fyrir kirkjuþing 2009.
Þá fór fram síðari umræða um 1. mál, skýrslu Kirkjuráðs og þær skýrslur er fylgdu því máli. Samþykkt var ályktun þar sem meðal annars kom fram áfram verði unnið að umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar og hún komi til afgreiðslu á Kirkjuþingi 2009. Kirkjuráð er hvatt til að hraða sem kostur er þinglýsingum kirkjulegra eigna og Kirkjuþing ályktar að ráða þurfi til starfa upplýsingastjóra Þjóðkirkjunnar.
Næst var tekið fyrir 11. mál, Þingsályktun um æskulýðsstarf í kirkjunni, og eftirfarandi ályktun samþykkt: "Kirkjuþing ályktar að vísa málinu til biskups Íslands til frekari skoðunar."
19. mál dregið til baka af fjárhagsnefnd. Hér er um að ræða sama efni og samþykkt var á Kirkjuþingi 2007. Þá var eftirfarandi samþykkt: "Kirkjuþing 2007 samþykkir að leggja til við kirkjumálaráðherra að gjaldskrá um aukaverk presta, samkvæmt lögum nr. 36/1931 verði breytt á þann veg að gjaldtaka fyrir fermingarfræðslu og skírn verði felld niður frá og með 1. jan. 2009.
Jafnframt verði tryggt að kjör presta skerðist ekki við þessar breytingar." Unnið hefur verið í því að koma þessari ályktun í framkvæmd en því er ekki lokið, meðal annars vegna yfirstandandi endurskoðunar á þjóðkirkjulögum.
21. mál: Tillaga að starfsreglum um breyting á 7. grein starfsreglna um íslensku þjóðkirkjuna erlendis nr. 1003/2005 samþykkt með smávægilegum breytingum.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 30/10 2008 15.38