Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Fjögur mál voru tekin til annarrar umræðu á þingfundi kl. 11.15 í morgun og samþykkt.
Þetta eru:
Mál 3 Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026 / 2007 sem fjallar um sameiningu sókna í Árnesprófastsdæmi og Borgarfjarðarprófastsdæmi.
6. mál Þingsályktun um drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar sem fjallar um trúargrundvöll kirkjunnar og helgisiði. Samþykkt var beina því til biskups Íslands að þessi drög verði áfram til kynningar og umræðu á vettvangi kirkjunnar og hljóti lokaafgreiðslu á kirkjuþingi 2009.
10. mál. Þingsályktun um mótun starfsreglna fyrir kirkjuþing unga fólksins. Með ályktun sinni leggur Kirkjuþing til að hefja undirbúning að því að kirkjuþing unga fólksins verði haldið árlega. Einnig er lagt til að fulltrúi kirkjuþings unga fólksins fái rétt til setu á kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétti.
13. mál Starfsreglur um breyting á starfsreglum um presta nr. 735/1998. Það mál tekur á nokkrum þáttum er varða presta, m.a. hvaða reglur gidli ef tvö prestaköll vilja í sameiningu ráða einn prest, hvernig staðið skuli að verkaskiptingu sóknarpresta og presta og ákvæði um að biskup geti farið fram á að prestur sinni ekki ákveðnum verkum ef hann er í leyfi vegna ásakana um refsiverða háttsemi.
Málin má finna undir Málaskrá og samþykkt kirkjuþings undir Gerðir.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 30/10 2008 12.55