Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Fjögur ný mál tekin fyrir í dag

Fjögur ný mál verða lögð fyrir þingið á þingfundi sem hófst kl. 9 í morgun. Þrjú eru frá fjárhagsnefnd og eitt frá allsherjarnefnd. Forseti þingsins leitaði eftir samþykki þingsins fyrir þessu, þar sem mál þurfa að jafnaði að hafa borist þinginu 6 vikum fyrir upphaf þings.

Málin eru:
19. mál: Tillaga til þingsályktunar um niðurfellingu á gjaldtöku fyrir
fermingarfræðslu og skírn (ef leyft verður)
Flutt af fjárhagsnefnd
Frsm. Einar Karl Haraldsson

20. mál: Tillaga um breytinga á starfsreglum um rekstrarkostnað
prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999 (ef leyft verður)
Flutt af fjárhagsnefnd
Frsm. Helga Halldórsdóttir

21. mál: Tillaga um breyting á 7. grein starfsreglna um íslensku Þjóðkirkjuna erlendis nr. 1003/2005 (ef leyft verður)
Flutt af fjárhagsnefnd
Frsm. Þorgrímur Daníelsson

22. mál: Tillaga til þingsályktunar vegna efnahagsþrenginga Íslendinga (ef leyft verður)
Flutt af allsherjarnefnd
Frsm. Gísli Gunnarsson