Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Í ályktun við skýrslu kirkjuráðs sem var samþykkt á kirkjuþingi í dag þakkaði þingið biskupi Íslands fyrir að hafa „í embætti sínu unnið með heill og hag kirkju Krists í huga og mótað kirkju síns tíma.“ Þingið skoraði jafnframt á Alþingi að hafa ákvæði um íslenska þjóðkirkju í frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár.
Árni Svanur Daníelsson, 19/11 2011 8.21
Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, tilkynnti við lok kirkjuþings að hann hygðist láta af störfum á næsta ári. Hann gerir ráð fyrir að nýr vígslubiskup verði vígður á Hólahátíð í ágúst 2012.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 19/11 2011 8.20
Þá erum við komin að leiðarlokum í þessari lotu sem hefur í senn verið krefjandi og gefandi. Sú hugsun verður æ áleitnari að kirkjuþing þurfi að koma saman oftar en einu sinni á ári til þess að geta í raun gegnt því mikilsverða hlutverki að fara með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar.
Pétur Kr. Hafstein, 18/11 2011 21.23
Leikmenn verða meirihluti kjörmanna í biskupskjöri samkvæmt nýjum starfsreglum sem samþykktar voru á lokadegi kirkjuþings í dag. Samþykkt var að allir formenn sóknarnefnda hafi kosning og að auki varaformenn sóknarnefnda í Kjalarnessprófastsdæmi og Reykjavíkurprófastsdæmum eystra og vestra.
Árni Svanur Daníelsson, 18/11 2011 13.16
Leikmenn verða í meirihluta kjörmanna til biskupsembættis samkvæmt nýjum starfsreglum sem samþykktar voru á lokadegi þingsins. Samþykkt var að allir formenn sóknarnefnda og varaformenn sóknarnefnda í Kjalarnessprófastsdæmi og Reykjavíkurprófastsdæmum eystra og vestra.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 18/11 2011 13.14
Á 10. þingfundi var tekist á um tillögu að starfsreglum fyrir biskupskosningar. Fundarhlé var gert kl. 12.05 og fer atkvæðagreiðsla fram er þingfundur hefst að nýju.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 18/11 2011 12.07
Níu mál samþykkt á níunda þingfundi sem hófst kl. 9.00 á lokadegi kirkjuþings.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 18/11 2011 9.51
Tíu mál voru afgreidd á 8. þingfundi.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 17/11 2011 19.25
Ágreiningur um tillögu að starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa. Löggjafarnefnd lagði fram nokkrar breytingar við fyrirliggjandi tillögur.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 17/11 2011 18.17
7. þingfundur hófst kl. 15.00. Sex mál voru afgreidd.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 17/11 2011 18.16
Ellefu mál lágu fyrir 6. þingfundi sem hófst kl. 13.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 17/11 2011 13.42
Aðeins ein fyrirspurn barst, frá sr.Baldri Kristjánssyni, og varðaði hún prestsembætti í sameinuðu Bjarnarnesprestakalli. Fyrir kirkjuþingi liggur bréf frá sóknarpresti sem starfar einn í þessu víðfeðma prestakalli.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 16/11 2011 13.17
Gunnlaugur Stefánsson mælti fyrir 34. máli, Tillögu að starfsreglum um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 15/11 2011 17.48
Solveig Lára Guðmundsdóttir flutti 33. mál, Tillaga til þingsályktunar um skipulagningu íbúabyggðar í landi Háls í Fnjóskadal.Arði sem af slíku myndi hljótast yrði varið til uppbyggingar Kirkjumiðstöðvarinnar við Vestmannsvatn.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 15/11 2011 17.22
Tillaga um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar var lögð fram á kirkjuþingi í dag. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, mælti fyrir stefnunni. Í stefnunni kemur fram sýn á þjóðkirkjuna sem lifandi hreyfingu fólks sem á samleið í trúnni á Jesú Krist, sem vettvang samtals um trú og lífsgildi, sem nærverandi og opna kirkju sem sem hvílir á stoðum trúar, hugrekkis og vonar og gefur fólki færi á að íhuga og iðka trú.
Árni Svanur Daníelsson, 15/11 2011 17.11
Hægt er að fylgjast með þingfundum í beinni útsendingu á vefnum.
Kirkjuþing verður næst haldið árið 2012.
Samantektarsíða fyrir fjölmiðla.